Fara beint í efni

Finnur Arnar Arnarson

Náttúra I

Náttúra I / Finnur Arnar Arnarson

Breidd:

260 cm

Hæð:

90 cm

Flokkur:

Innsetning

Ár:

2003

Í verkaröð sinni skeytir Finnur Arnar hverju sinni saman tveimur vídeóum, þar sem stöðug myndavél fangar valið sjónarhorn nokkra hríð án klippingar. Annað myndskeiðið er uppstillt og sýnir manneskju en hitt er tekið undir berum himni í óröskuðu landslagi. Í verkunum tveimur er annars vegar fylgst með sofandi stúlku og horft niður kletta Látrabjargs, hins vegar sjáum við skýjafar yfir hálendisauðn við hlið vangamyndar karlmanns og uppstoppaðs fálka. Náttúran sem verkin lýsa virðist flökta á milli ytra landslags og innri vitundar, milli eilífrar hringrásar veraldarinnar og hverfulleika mannsins.

Fleiri verk eftir Finnur Arnar Arnarson

Náttúra II
Finnur Arnar Arnarson
Náttúra II / Innsetning
Skoða
Sjá öll verk (2)