Fara beint í efni

Erró

Moulage II / Mót II

Moulage II / Mót II / Erró

Hæð:

28 cm

Flokkur:

Skúlptúr

Ár:

1969

Eftir vélræna skeið sitt (1958–1963), þar sem Erró skapaði grímur og aðra leikmuni fyrir kvikmyndina Vélkonsert fyrir klikkunina, eða Hin klikkaða vélmyndbreyting, vann hann aðeins örfá samsetningarverk á völdum tímum á ferli sínum. Árið 1969 gerði hann tilraunir með snúningsaðferðir í verkaröðinni Snúningsmálverk, sem byggð var á klippimyndum. Þar skar hann einfaldlega út eina eða fleiri hringlaga sneiðar úr endurprentuðum málverkum, hreyfði þær ekki úr stað en sneri þeim. Sama ár beitti hann svipaðri nálgun í þrívídd, í höggmyndum. Hann fann tvær gifsstyttur af Beethoven í verslun í París – styttu af þeirri gerð sem gjarnan eru notaðar til æfinga í listasöfnum – og skar þær í þrjá hluta. Hann snéri miðhlutanum, sem varð til þess að andlitin röskuðust, og skapaði nýja, brenglaða mynd. Þetta ruglandi en gáskafulla verk er lúmsk skopstæling á sundurgreiningu kúbismans og brotakenndri sýn á veruleikann. Á þessum tíma var Erró djúpt sokkinn í ólík form niðurbrots, hann var meðvitað að ögra ríkjandi hugmyndum, endurmeta menningarleg viðhorf og draga í efa hvernig fjölmiðlar og listasagan sjálf túlka sögulegar persónur og tákn valds og yfirráða.

Fleiri verk eftir Erró

Manga-vegur
Erró
Manga-vegur / Málverk
Skoða
Alia
Erró
Alia / Málverk
Skoða
Foodscape 1964
Erró
Foodscape 1964 / Grafík
Skoða
Frumskógardrottningin
Erró
Frumskógardrottningin / Annað
Skoða
Facescape / Andlitavíðátta
Erró
Facescape / Andlitavíðátta / Grafík
Skoða
Magritte 1992
Erró
Magritte 1992 / Grafík
Skoða
Le Miró
Erró
Le Miró / Grafík
Skoða
Án titils
Erró
Án titils / Grafík
Skoða
Sjá öll verk (4.709)