Fara beint í efni

Erró

Mercury Astronauts in Pressure Suits / Geim­farar Mercury í geimbún­ingum

Mercury Astronauts in Pressure Suits / Geimfarar Mercury í geimbúningum / Erró

Breidd:

76 cm

Hæð:

100 cm

Flokkur:

Málverk

Ár:

1980

Þann 21. júlí 1969 fylgdist Erró, ásamt um 600 milljónum manna um allan heim, með Neil Armstrong stíga fyrstu skref sín á tunglinu – táknrænn sigur Bandaríkjanna í geimferðakapphlaupi kalda stríðsins gegn Sovétríkjunum. Árið 1976 heimsótti Erró NASA-bækistöðina í Houston, Texas og fylgdist með þjálfun geimfara, klæddist geimbúningi og tók þátt í hermilendingu í tunglskutlu (LEM). Þar kynntist hann einnig verkum Roberts McCall, sem var einn af opinberum málurum NASA. Á árunum 1974 til 1981 skapaði Erró margar klippimyndaseríur sem túlka geimkönnun og landvinninga í geimnum, aðallega með endurunnu NASA-myndmáli. Hann tefldi hetjulegum og uppstilltum myndum af bandarískum geimförum fram gegn nektarmyndum af konum úr listasögunni, sérstaklega í anda Ingres. Þessi andstæða dregur fram karlmiðað keppnisumhverfi í mótsögn við kvenlæga íhugun, og tengir kaldhæðnislega geimlandvinninga við valdbeitingu gagnvart konum. Erótískur undirtónn verkanna kollvarpaði hinni hreinlífu ímynd af geimförum sem NASA og fjölmiðlar settu fram. Til að umbreyta þessum klippimyndum í málverk vann Erró með tælenskum kvikmyndaplakatsmálurum, sem voru þekktir fyrir snilldartækni sína í sósíalísku raunsæi og ofurraunsæi.

Fleiri verk eftir Erró

Manga-vegur
Erró
Manga-vegur / Málverk
Skoða
Alia
Erró
Alia / Málverk
Skoða
Foodscape 1964
Erró
Foodscape 1964 / Grafík
Skoða
Frumskógardrottningin
Erró
Frumskógardrottningin / Annað
Skoða
Facescape / Andlitavíðátta
Erró
Facescape / Andlitavíðátta / Grafík
Skoða
Magritte 1992
Erró
Magritte 1992 / Grafík
Skoða
Le Miró
Erró
Le Miró / Grafík
Skoða
Án titils
Erró
Án titils / Grafík
Skoða
Sjá öll verk (4.709)