Erró
McLuhan
Breidd:
46 cm
Hæð:
33.5 cm
Flokkur:
Málverk
Ár:
1968
Verk Errós byggja á undirbúningsklippimyndum þar sem hann tengir saman og stillir upp „myndum heimsins“, frá ólíkum tímum, stöðum og menningarlegum lögum. Við yfirfærslu klippimyndanna í málverk öðlast smávægilegar, fjöldaframleiddar prentmyndir aukið vægi og áhrifamátt og taka á sig nýja merkingu. Dæmi um slíkt eru verkin úr Skrímslin-myndaröðinni frá árunum 1967–68. Í þessum portrettskopmyndum blandar Erró opinberum myndum þekktra einstaklinga úr stjórnmálum, listum, bókmenntum, tónlist, kvikmyndum og vísindum saman við andlit úr bandarískum hryllingsmyndablöðum. Hann sameinar hluta af andlitum fræga fólksins við afmynduð og grett andlit og skapar þannig eitt brenglað portrett. Hvert málverk samanstendur af tveimur höfðum, þar sem annað speglar hitt. Þessi framsetning afhjúpar ekki aðeins sköpunarferlið og rýfur þannig dulúð verksins, heldur breytir hún einnig skynjun okkar á viðfangsefnunum. Fræga manneskjan og skrímslið eru samtengd – afmynduð svipbrigðin leiða í ljós faldar hliðar viðkomandi og breyta því hvernig við lítum á þau. Með þessum skopmyndum ögrar Erró mörkum milli sannleika og blekkingar og hvetur okkur til að efast um opinberar ímyndir og frásagnir fjölmiðla, og mynda okkur eigin skoðanir. Danielle Kvaran