Fara beint í efni

Ívar Valgarðsson

Innsetning

Innsetning / Ívar Valgarðsson

Flokkur:

Innsetning

Ár:

1991

Innsetning Ívars samanstendur af nokkrum verkum sem sett eru saman úr mismunandi byggingarefnum: hvít málning-málningardósir, hefluð fura, krossviður, hnoðkítti, gangstéttarhellur, innanhúsmálning og einangrunarplast. Þessu efni er á engan hátt umbreytt. Því er aðeins raðað upp samkvæmt ákvörðun listamannsins. Í þessu verki gengur listamaðurinn lengra en nokkru sinni fyrr í afstöðu sinni til listhlutarins. Hann hvorki hannar né skapar hluti/form, heldur aðeins velur hluti sem þegar eru til - þekkt byggingarefni - rífur það úr hefðbundnu samhengi, raðar þeim upp og gefur þeim nýja merkingu. Innlegg listamannsins - sköpunin - felst því einvörðungu í vali á hráefni, uppröðuninni/endurtekningunni og afstöðu hlutanna í rýminu. Ekkert er gert til að setja það í listrænan búning í hefðbundnum skilningi. Það aðeins talar sínu máli, í ákveðinn tíma og síðan leyst upp. Þó svo að þessi innsetning sé ákveðin viðræða við listasöguna (ready-made, rými minimalismans, merkingarleg tæming conceptlistarinnar) þá hafa þessi hlutir/efni skýr hugtengsl fyrir áhorfendur sem listamaðurinn leikur sér með á tvíræðan hátt. Þrátt fyrir að listin virðist standa hér á núllpunkti sköpunarinnar, þá verður ekki undan því komist að þetta listaverk samanstendur af hlutum/táknum sem ala af sér ákveðna frásögn. Þetta er byggingarefni/listaverk (uppbyggjandi) sem vísar inn í það sem verður, nýsköpunina, það að brjóta nýjar leiðir, jafnframt því sem þetta tvíræða hugtak hefur til að bera afgerandi siðrænan boðskap.

Fleiri verk eftir Ívar Valgarðsson

Fagurblátt-Ljósfagurblátt
Ívar Valgarðsson
Fagurblátt-Ljósfagurblátt / Innsetning
Skoða
Vatnslitur* (3-6-9 mm gler á vatnslitapappír)
Ívar Valgarðsson
Vatnslitur* (3-6-9 mm gler á vatnslitapappír) / Innsetning
Skoða
Sólgult, þurrktími*
Ívar Valgarðsson
Sólgult, þurrktími* / Innsetning
Skoða
Spring green - Skyblue - Orange*
Ívar Valgarðsson
Spring green - Skyblue - Orange* / Innsetning
Skoða
Fölgult-Morgungult*
Ívar Valgarðsson
Fölgult-Morgungult* / Innsetning
Skoða
3-6-9 umferðir*
Ívar Valgarðsson
3-6-9 umferðir* / Innsetning
Skoða
Handgerðir hringir*
Ívar Valgarðsson
Handgerðir hringir* / Innsetning
Skoða
Skissur fyrir Dæmi um litasamsetningar
Ívar Valgarðsson
Skissur fyrir Dæmi um litasamsetningar / Samklipp
Skoða
Sjá öll verk (12)