Fara beint í efni

Nína Sæmundsson

Hafmeyjan

Hafmeyjan / Nína Sæmundsson

Flokkur:

Skúlptúr

Ár:

1948

Verkið er staðsett í Tjörninni Hafmeyjan í Höggmyndagarði kvenna í Reykjavík var steypt í brons eftir frummynd sem Nína vann um 1948 á vinnustofu sinni í Hollywood. Nína notaði í verkum sínum margvíslegar menningarlegar tilvísanir, ekki síst goðsagnaminni, þar sem konan er í aðalhlutverki, og er Hafmeyjan eitt þeirra verka. Samkvæmt þjóðsögunni sat hafmeyjan á kletti í hafinu og lokkaði með söng til sín sæfara sem hurfu í faðmi hennar ofan í hafdjúpið. Nína mótar þessa þjóðsagnaveru af klassískum þokka og ljóðrænni mýkt og hafmeyjan ljómar af fegurð og kvenleika. Samruni kvenlíkamans og hins þétta og stinna fisksporðar myndar í heild mjúkar og ávalar línur og við það nær listakonan fram sveigju og um leið meiri slökun í líkama hafmeyjunnar. Nína dregur formfagran sporðuggann fram fyrir kynjaveruna og opnar hann líkt og blævæng . Hægri höndin hvílir á klettinum en hún réttir fram þá vinstri, með lófann opinn, líkt og hún bjóði áhorfandanum að fylgja sér.

Fleiri verk eftir Nína Sæmundsson

Án titils
Nína Sæmundsson
Án titils / Skúlptúr
Skoða
Móðurást
Nína Sæmundsson
Móðurást / Skúlptúr
Skoða
Móðurást
Nína Sæmundsson
Móðurást / Skúlptúr
Skoða
Bedúínakona á bæn
Nína Sæmundsson
Bedúínakona á bæn / Skúlptúr
Skoða
Án titils
Nína Sæmundsson
Án titils / Skúlptúr
Skoða
Án titils - Ungur maður
Nína Sæmundsson
Án titils - Ungur maður / Skúlptúr
Skoða
Án titils - Faðmlag
Nína Sæmundsson
Án titils - Faðmlag / Skúlptúr
Skoða
Án titils - Maður
Nína Sæmundsson
Án titils - Maður / Skúlptúr
Skoða
Sjá öll verk (14)