Fara beint í efni

Erró

Fuglavíð­átta 1979

Fuglavíðátta 1979 / Erró

Breidd:

152.5 cm

Hæð:

103 cm

Flokkur:

Grafík

Ár:

1979/2011

Í verkinu setur Erró saman fjöldann allan af fuglum sem hann vinnur úr því mikla myndefni sem hann hefur safnað að sér. Í myndfletinum sameinar hann fugla af mismunandi tegundum og raðar eftir lögun, litblæ og stærð. Suma stækkar hann upp og setur í forgrunn til að skapa dýpt á meðan aðrir hopa inn í þéttofinn bakgrunninn. Inn á milli fuglanna kemur Erró fyrir leðurblöku á flugi, utanaðkomandi gesti sem raskar varfærnislega flokkunarfræði senunnar. Útkoman vekur tilfinningu fyrir líffræðilegri fjölbreytni en jafnframt fylgja ofgnóttinni óþægindi og sjónrænt áreiti. Slíkt magn fugla minnir á ógnvekjandi andrúmsloft í kvikmynd Alfreds Hitchcock, The Birds, þar sem gnægðin vekur spennu og aðdáun.

Fleiri verk eftir Erró

Manga-vegur
Erró
Manga-vegur / Málverk
Skoða
Alia
Erró
Alia / Málverk
Skoða
Foodscape 1964
Erró
Foodscape 1964 / Grafík
Skoða
Frumskógardrottningin
Erró
Frumskógardrottningin / Annað
Skoða
Facescape / Andlitavíðátta
Erró
Facescape / Andlitavíðátta / Grafík
Skoða
Magritte 1992
Erró
Magritte 1992 / Grafík
Skoða
Le Miró
Erró
Le Miró / Grafík
Skoða
Án titils
Erró
Án titils / Grafík
Skoða
Sjá öll verk (4.709)