Fara beint í efni

Magnús Tómasson

Einhyrn­ingur, Tvíhyrn­ingar

Einhyrningur, Tvíhyrningar / Magnús Tómasson

Breidd:

1050 cm

Hæð:

340 cm

Flokkur:

Skúlptúr

Ár:

1990

Verkið er staðsett við Vesturbæjarskóla Magnús Tómasson fékk það verkefni að vinna að skúlptúrum fyrir utan Vesturbæjarskóla og hanna lóðina í náinni samvinnu við arkitektinn Ingimund Sveinsson. Steinarnir eru ómótaðir af hönd listamannsins en hann hefur fest á þá nautshorn og einhyrningshorn úr áli.Við fáum á tilfinninguna að þarna standi einhyrningur á móti tveimur nautum. Steinarnir mynda ögrandi spennu gagnvart skólabyggingunni og umhverfinu og eru til þess fallnir að vekja ímyndunarafl barnanna sem þar stunda nám og fá þau til að hugsa um umhverfi sitt á frjóan og sjálfstæðan hátt.

Fleiri verk eftir Magnús Tómasson

Minnisvarði um óþekkta embættismanninn
Magnús Tómasson
Minnisvarði um óþekkta embættismanninn / Skúlptúr
Skoða
Ágrip af sögu flugsins 2 hl. af 6
Magnús Tómasson
Ágrip af sögu flugsins 2 hl. af 6 / Skúlptúr
Skoða
Dropar
Magnús Tómasson
Dropar / Skúlptúr
Skoða
Sjá öll verk (4)