Breidd:
54.5 cm
Hæð:
37 cm
Flokkur:
Teikning
Ár:
1974
Barbara Árnason var ákaflega fjölhæf listakona, listmálari, vatnslitamálari, afburða teiknari, myndskreytir og textíllistamaður, og er þá ekki allt nefnt. Sérstaklega þótti hún næmur túlkandi barnslegrar vitundar, eins og sést í portrettmyndum hennar af börnum, myndskreytingum í barnabókum og í veggmyndunum sem hún gerði fyrir Melaskóla í Reykjavík á árunum 1952–53.