Breidd:
125 cm
Hæð:
100 cm
Flokkur:
Málverk
Ár:
1996
Eggert Magnússon (1915-2010) var sjálfmenntaður listamaður og einn af þekktustu naívistum þjóðarinnar. Hann hóf að mála myndir upp úr 1960 samhliða sjómennsku en hann stundaði bæði veiðar við Grænland og strendur Gambíu í Afríku. Myndefni sín sótti Eggert gjarnan til þeirra framandi slóða sem hann hafði heimsótt, minningarbrot eða fréttnæma viðburði.