Anna Júlía Frið­björns­dóttir

NF (Þú stefnir í voða)

Þrívíð verk

Breidd:

107 cm

Hæð:

75 cm

Flokkur:

Annað

Ár:

2019

Anna Júlía hefur gert nokkur verk þar sem hún ímyndar sér að umhverfið sé að reyna að senda manninum skilaboð. Verkin eru steyptar lágmyndir sem minna á steingervinga. Titlar verkanna vísa í kallmerki í Mors-kóða þar sem tákn eru mynduð með stuttum og löngum einingum. Í þessu verki má greina stutt og löng boð og lesa: „Þú stefnir í voða.“ Anna Júlía bendir á að kannski hefur maðurinn tapað hæfileika til að lesa í og skilja náttúrulegt umhverfi sitt.