Barbara Árnason

Börn að leik

Breidd:

147 cm

Hæð:

115 cm

Flokkur:

Málverk

Ár:

1952

Barbara Árnason var ákaflega fjölhæf listakona, listmálari, vatnslitamálari, afburða teiknari, myndskreytir og textíllistamaður, og er þá ekki allt nefnt. Sérstaklega þótti hún næmur túlkandi barnslegrar vitundar, eins og sést í portrettmyndum hennar af börnum, myndskreytingum í barnabókum og síðast en ekki síst, í veggmyndunum sem hún gerði fyrir Melaskóla í Reykjavík á árunum 1952–53.