Sander, Karin
Póstlagt málverk 156, Bonn - Berlin - New York - Reykjavík

Flokkur:
Málverk
Ár:
2014
Þetta kringlótta málverk fór frá vinnustofu þýsku listakonunnar Karin Sander á sínum tíma; glænýr, hvítur og hreinn strigi strekktur á blindramma. Hún sendi það með pósti þangað sem það var sýnt án þess að pakka því inn og á leiðinni safnaðist allskonar óhreinindi á það, límmiðar og merkingar. Nú hefur það farið fram og tilbaka á milli nokkurra staða eins og sjá má. Verkið varð í raun til á leiðinni á tilviljanakenndan máta.