Ásmundur Sveinsson

Móðir mín í kví, kví

Breidd:

90 cm

Hæð:

110 cm

Flokkur:

Skúlptúr

Ár:

1943

Verkið er staðsett í höggmyndagarði við Ásmundarsafn. Ásmundur Sveinsson sótti meðal annars innblástur í þjóðsögur í verkum sínum og slíkar tengingar er að finna í verkinu Móðir mín í kví, kví. Verkið sýnir útborið og afturgengið barnið birtast angistarfullri móður sinni og bjóða henni „dulu að dansa í.“ Verkið hefur einföld form þar sem ekki er að finna smáatriði í líkama móður og barns, eftir stendur aðeins það sem nægir til þess að koma inntaki verksins til skila.