Breidd:
147 cm
Hæð:
67 cm
Flokkur:
Málverk
Ár:
1935
Árið 1929 tók Kjarval þá meðvituðu ákvörðun að leggja megináherslu á að mála landslag útivið. Samtímis valdi hann Þingvelli sem byrjunarreit hins nýja landslagsmálverks. Hann lagði gjarnan leið sína frá Valhöll og suður með Þingvallavatni meðfram Hestgjá og málaði frá því svæði útsýnið til norðurs. Frá þessum svæði málaði hann stóra myndröð sem sýnir Ármannsfell og Skjaldbreið og hefur klettaveggi eða hraundranga Hestgjár í forgrunni. Verkin í þessari myndröð eru ólík innbyrðis hvað varðar stíl og yfirbragð, en sú meginbreyting hefur orðið frá fyrri myndröðum að forgrunnur verkanna fær aukið vægi. Í verkinu Ágústnótt á Þingvöllum er forgrunnur og bakgrunnur í jafnvægi en næturbirtan deyfir útlínur fjallanna og skapar dulúðuga stemningu.