Hafsteinn Aust­mann

Spenna

Breidd:

340 cm

Hæð:

320 cm

Flokkur:

Skúlptúr

Ár:

1989

Verkið er staðsett við Bústaðaveg. Spenna, útilistaverk Hafsteins Austmanns, stendur við stjórnstöð Landsvirkjunar á Bústaðavegi. Verkið bar sigur úr býtum í samkeppni sem Landsvirkjun efndi til árið 1989 og var sett upp árið eftir. Þetta er einfalt form úr Corten stáli sem veðrast vel með ryðguðu yfirborði. Það lítur út eins og risastórt þrívítt tilbrigði um stoðkerfið sem einkennir olíumálverk Hafsteins á níunda áratugnum. Að inntaki er verkið hins vegar eins konar hylling þeirrar orku sem gefur okkur stálið.