Sigurjón Ólafsson

Gríma

Breidd:

126 cm

Hæð:

260 cm

Flokkur:

Skúlptúr

Ár:

1947/1989

Verkið er staðsett við Borgarleikhúsið. Sigurjón hafði mikið dálæti á sterku myndmáli fornra þjóða: Etrúska, Egypta, Maya og Inka og ekki síst Grikkja á arkaíska tímabilinu svonefnda. Í upphafi 20. aldar leituðu margir listamenn fanga í list fornra þjóða og varð gríman mjög algengt mótíf í verkum margra sem kenndir hafa verið við módernisma allt fram yfir miðja 20. öld. Í grímunni sá fólk leið til að víkja frá eftirlíkingu náttúrunnar og lýsa í staðinn tilfinningum og innri veruleika í verkum sínum. Gríman er ævafornt fyrirbæri og hefur verið notuð víða um heim í trúariðkun og til að ná sambandi við yfirnáttúruleg öfl. Nægir hér að nefna þjóðflokka í Afríku og inúíta á Grænlandi og í Alaska. Gríman er einnig verkfæri leikara og tvær grímur eru táknmynd leiklistar. Stækkuð afsteypa af Grímunni stendur við Borgarleikhúsið í Reykjavík.