Breidd:
60 cm
Hæð:
46 cm
Flokkur:
Málverk
Ár:
1935
Álfar og huldufólk komu snemma við sögu í verkum Kjarvals. Í fyrstu verkunum fór huldufólkið oft í hópum og gekk í kletta. Um miðjan fjórða áratug tók hann að tengja huldufólkið við haf og skip og spann þannig saman tvær af algengustu táknmyndum sínum hulduverur og skip. Verkið Á hulduströnd dæmi um þetta. Kjarval leiðir áhorfendur inn í huglæga og dulúðuga veröld, þar sem ekkert er sem sýnist. Verkið er borið uppi af þeirri formrænu margræðni sem svo oft kemur fyrir í myndmáli Kjarvals, kletturinn á bakvið konuna í forgrunni myndarinnar er samtímis vangamynd og varir hennar mæta vörum annarar vangamyndar í kossi. Hvít gegnumþrengjandi birta og margbrotið litróf magnar dulúðuga, upphafna stemningu. Titill myndarinnar vísar til íslenskrar þjóðtrúar um huldufólk og yfirnáttúrulegar verur sem byggja landið með mannfólkinu. Í þjóðtrúnni eru mörkin á milli hins skilgreinda, áþreifanlega raunveruleika og huliðsheima oft mjög á reiki og það sama á við um verk Kjarvals.