Sigurður Ámundason

Rétt­hermi

Flokkur:

Fjöltækni

Ár:

2022

Rétthermi var sýnt á yfir 450 stafrænum flötum Billboard um allt höfuðborgarsvæðið dagana 1.–3. janúar 2023. Verkefnið nefnist Auglýsingahlé og er unnið í samstarfi Billboard, Y gallery og Listasafns Reykjavíkur. Var verk Sigurðar valið úr innsendum tillögum í opinni samkeppni meðal listamanna um myndlistarverk í almannarými. Reikna má með að yfir 80% höfuðborgarbúa sjái verkin á skiltum bæjarins og er verkefninu ætlað að lýsa upp skammdegið og gefa borgarbúum tækifæri á að njóta listar um alla borgina. Sigurður lýsir verkinu á þennan hátt: "Póst-strúktúralismi, óræðni og efi eru undirstöður verkanna. Merkingarlaus vörumerki sem túlka ekkert en líta stórt á sig, bera númer og íslenska stafi í handahófskenndri röð. Tákn sem tákna tákn, sem snúast um sjálf sig, leiðarvísar sem í raun leiða ekki neitt."