Ásmundur Sveinsson

Kona að strokka

Breidd:

90 cm

Hæð:

190 cm

Flokkur:

Skúlptúr

Ár:

1934

Við Árbæjarsafn og við Erpsstaði Verk þetta vann Ásmundur í Reykjavík árið 1934 og sýnir hún konu að strokka. Kona með strokk er, líkt og fleiri verk Ásmundar frá þessum árum, þykk og massíf heild sem hvergi loftar um. Allt er gert til að undirstrika þyngdina og massann. Myndin er kyrrstæð tvíhverfa í fullkomnu jafnvægi, sem byggist á lóðréttum og láréttum kröftum, og það er aðeins staða höfuðsins sem gefur myndinni ákveðna mýkt. Þrátt fyrir hina formrænu áherslu listamannsins er myndin natúralísk lýsing á smjörgerð fyrri ára, og óður til íslenskra kvenna fyrr og síðar.