Opnun Erró sýningar í Porto Alegre í Brasilíu

Ný sýning á verkum Errós, eins ástsælasta og þekktasta listamanns Íslendinga, verður opnuð laugardaginn 28. mars í safni Iberê Camargo‑stofnunarinnar í Porto Alegre í Brasilíu. Er þetta í fyrsta sinn sem verk Errós eru sýnd í Brasilíu. Sýningin er unnin í nánu samstarfi Listasafns Reykjavíkur og Iberê Camargo‑stofnunarinnar og er Danielle Kvaran sýningarstjóri. Hún hefur valið fjölbreytt verk úr ferli Errós sem varpa ljósi á ríka myndheim listamannsins og sérstakan stíl hans þar sem poppmenning, alþjóðleg stjórnmál og myndræn frásögn fléttast á einstakan hátt. Sýningin mun standa yfir í fimm mánuði en hún fer fram á tveimur hæðum af fjórum á safninu. Hægt er að skoða vefsíðu safnsins hér: https://iberecamargo.org.br/
