Kveikt er á Friðarsúlu Yoko Ono í viku í kringum vorjafndægur

- mars 2026
Í tilefni af vorjafndægrum 20. mars er nú kveikt á Friðarsúlu Yoko Ono í Viðey og markar það hugleiðingar um frið og bjartari tíma framundan. Með hækkandi sól er súlan tendruð á hverju kvöldi kl. 20.00 og logar til miðnættis til föstudags 27. mars.
Á vorjafndægrum eru dagur og nótt ekki alveg jafn löng. Við njótum örlítið meiri dagsbirtu en myrkurs, mörgum sennilega til mikillar ánægju. Friðarsúlan í Viðey er hugarfóstur listarmannsins og friðarsinnans Yoko Ono og er hugsuð sem leiðarljós fyrir heimsfrið. Verkið er í formi „óskabrunns“ en á hann eru orðin „Hugsa sér frið“ grafin á 24 tungumálum. Upp úr brunninum stígur ljóssúla sem er saman sett úr fimmtán geislum sem sameinast í einu sterku ljósi. Sex ljósgeislanna fara lárétt um göng á palli í kringum brunninn og er endurkastað upp með speglum. Pallurinn er þakinn þrenns konar íslensku grjóti – líparíti, grágrýti og blágrýti. Þessi hönnun er táknræn tjáning Yoko Ono á leiðbeiningarverki sem hún gerði árið 1965 og nefnist Ljóshús.