Nýtt kaffihús opnar í Hafnarhúsi

Kaffi H er nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur á 2. hæð í Hafnarhúsi. Kaffihúsið er fyrir alla sem leita að notalegum samverustað með einu besta útsýni Reykjavíkur yfir höfnina.
Kaffi H býður upp á gæðakaffi og matcha-te ásamt girnilegum vegan-réttum og bakkelsi. Súpa dagsins er í boði allan daginn og réttur dagsins frá kl. 12–14.00.
Kaffi H er samstarfsverkefni Listasafns Reykjavíkur og Hafnar.Haus sem er sjálfseignarstofnun og samfélag sem styður við skapandi fólk. Með þessu nýja samstarfi styrkist Hafnarhúsið enn frekar sem hús myndlistar og skapandi samfélags í Reykjavík.
Kaffi H er opið alla virka daga kl. 10–16.00.