Hallsteinsgarður

Árið 2013 tók Listasafn Reykjavíkur við gjöf Hallsteins Sigurðssonar myndlistarmanns til Reykvíkinga. Um var að ræða 16 höggmyndir úr áli sem Hallsteinn kom fyrir í landi Gufuness á árunum 1989 til 2012 og standa á hæð austan við gömlu áburðarverksmiðjuna í Gufunesi.
Í dag er þar skemmtilegur gróinn höggmyndagarður, þar sem verkin hafa notið sín og veitt gestum og gangandi ánægju eftir að byggð þéttist og eitt stærsta úthverfi í Reykjavík, Grafarvogur, byggðist upp.
Hallsteinn Sigurðsson er fæddur 1945, nam í Myndlista- og handíðaskólanum 1963-66 og svo við Hammersmith College og St. Martin School of Art í London 1966-72. Verk Hallsteins Sigurðssonar eru víða á söfnum, í einkaeign og í almenningsrými. Hann hefur haldið á annan tug einkasýninga og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum. Hallsteinsgarður er tilvalinn vettvangur fyrir skóla í Grafarvogi til að nýta í námi og leik.
Í Reykjavík Art Walk appinu má finna skemmtilegan ratleik um Hallsteinsgarð.

