Munduverðlaunin 2025: Anna Júlía Friðbjörnsdóttir
Afhending úr Listasjóði Guðmundu S. Kristinsdóttur frá Miðengi fór fram í 25. sinn fimmtudagskvöldið 5. júní við opnun sýningarinnar Erró: Remix í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi. Handhafi verðlaunanna í ár er Anna Júlía Friðbjörnsdóttir. Safnstjóri Listasafns Reykjavíkur, Ólöf Kristín Sigurðardóttir, bauð gesti velkomna og Sanna Magdalena Mörtudóttir, forseti borgarstjórnar, afhenti styrkinn.
Styrkur úr sjóðnum er veittur framúrskarandi listakonu og er honum ætlað að vera hvatning til frekari dáða á sviði myndlistar. Erró stofnaði Munduverðlaunin árið 1997 til minningar um móðursystur sína, Guðmundu S. Kristinsdóttur frá Miðengi. Með því vildi hann leggja sitt af mörkum til framþróunar íslenskrar myndlistar og hvetja myndlistarkonur til dáða. Peningaupphæðin, ein milljón og tvöhundruð þúsund, er nú hæsta viðurkenning sem veitt er á sviði myndlistar á Íslandi. Þetta er í 25. sinn sem styrkurinn er veittur og er það afar öflugur hópur listkvenna sem fengið hefur viðurkenninguna.
Handhafi Guðmunduverðlaunanna 2025, Anna Júlía Friðbjörnsdóttir, er fædd árið 1973 og býr og starfar í Reykjavík. Hún hefur unnið að myndlist í um tuttugu ár en hefur á síðustu árum vakið aukna athygli fyrir áhugaverð verk og öfluga innkomu í íslenska myndlistasenu, jafnframt því að sýna alþjóðlega. Verk Önnu Júlíu eru hugmyndalega heilsteypt um leið og efnisval og úrvinnsla bera vott um næmi og einstaka hæfileika til að úrfæra hugmyndir í ólík efni. Hún vinnur þvert á miðla og tekst á áhugaverða hátt á við tengsl vísinda og menningar í verkum sem taka mið af samtímanum með sterkar sögulegar vísanir. Anna Júlía lauk MA gráðu frá Manchester School of Arts, Manchester Metropolitan University, 2004 og BFA gráðu frá London Guildhall University 1998. Áður stundaði hún nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1993-95. Hún var meðstofnandi og ritstjóri myndlistartímaritsins Sjónauka sem var gefið út á árunum 2007-2009. Á ferli sínum hefur Anna Júlía tekið þátt í fjölda samsýninga og haldið fjölmargar einkasýningar, ber þar helst að nefna þátttöku hennar í sýningunni Iðavöllur í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi árið 2021 og einkasýninguna Erindi í Hafnarborg en fyrir hana var hún tilnefnd til Íslensku myndlistarverðlaunanna árið 2018. Verk hennar hafa vakið athygli jafnt hér heima sem erlendis en árið 2022 hlaut hún eftirsóttan styrk til ársdvalar í Kunstlerhau Behtanine í Berlín þar sem sett var upp einkasýning á verkum hennar. Nýlega lauk glæsilegri einkasýning á nýjum verkum eftir hana í Berg Contemproary í Reykjavík.
Þetta er í 25. sinn sem styrkurinn er veittur og er það afar öflugur hópur listakvenna sem fengið hefur viðurkenninguna hingað til, þær eru: 1998 Ólöf Nordal 1999 Finna Birna Steinsson 2000 Katrín Sigurðardóttir 2001 Gabríela Friðriksdóttir 2002 Sara Björnsdóttir 2003 Þóra Þórisdóttir 2004 Guðrún Vera Hjartardóttir 2006 Hekla Dögg Jónsdóttir 2008 Hulda Stefánsdóttir 2009 Margrét H. Blöndal 2010 Sara Riel 2011 Þórdís Aðalsteinsdóttir 2012 Ósk Vilhjálmsdóttir 2013 Guðný Rósa Ingimarsdóttir 2014 Ásdís Sif Gunnarsdóttir 2015 Sirra Sigrún Sigurðardóttir 2016 Hildigunnur Birgisdóttir 2017 Elín Hansdóttir 2018 Dodda Maggý 2019 Hulda Rós Guðnadóttir 2021 Anna Rún 2022 Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir 2022 Ingibjörg Sigurjónsdóttir 2024 Una Björg Magnúsdóttir 2025 Anna Júlía Friðbjörnsdóttir
Á myndinni eru frá vinstri: Ólöf Kristín Sigurðardóttir, Anna Júlía Friðbjörnsdóttir og Sanna Magdalena Mörtudóttir.