
Opin samkeppni um myndlistarverk í almenningsrými
Billboard efnir til opinnar samkeppni um myndlistarverk í almenningsrými í samstarfi við Y gallery og Listasafn Reykjavíkur.
Dagana 1.–3. janúar 2026 verður auglýsingahlé á yfir 550 skjáum Billboard um alla Reykjavíkurborg. Þessi tími verður helgaður sýningu á nýju verki eftir myndlistarmann sem valinn verður úr hópi umsækjenda. Listamaðurinn fær 1.000.000 kr greiddar fyrir verkið sem verður að sýningartíma loknum gefið í safneign Listasafns Reykjavíkur. Jafnframt er stefnt að því að verkið verði áfram sýnilegt í almenningsrými í borginni að loknu verkefninu.
Verkið verður bæði sýnt á skjáum í strætóskýlum og stórum skjáum (6x4m) við götur. Ekki er hægt að sýna hreyfimyndir eða myndskeið en mögulegt er að skipta um mynd á 8 sek. fresti.
Umsækjendur eru beðnir um að senda inn tillögur fyrir kl. 16:00 þann 10. október 2025. Umsóknin skal innihalda stuttan texta um fyrirhugað verk ásamt 1–5 myndum af verkinu (útskýringarmyndir, skissur, ljósmyndir o.s.frv.). Lokaútfærsla verksins verður síðan unnin í samstarfi við Y gallery.
Dómnefnd skipuð fulltrúa frá Y gallery, Listasafni Reykjavíkur, Billboard og SÍM fer yfir innsendar tillögur og tilkynnir um val sitt stuttu eftir að umsóknarfresti lýkur. Er þetta í fimmta sinn sem efnt er til auglýsingahlés en fyrri auglýsingahlé hafa verið 2022: Hrafnkell Sigurðsson, Upplausn, 2023: Sigurður Ámundason, Rétthermi, 2024: Haraldur Jónsson, Ummyndanir og 2025: Roni Horn, Major Public Art Project.
Umsóknareyðublað má nálgast hér https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSf79xN4z5gqp261cTB5mVS81FC1V_QvdEEByywFNKit-dVBUg/viewform