Appið – Útil­ista­verk í Reykjavík

Appið - Útilistaverk í Reykjavík

Listasafn Reykjavíkur gaf út appið Útilistaverk í Reykjavík (Reykjavík Art Walk) árið 2019, á ári útilistaverka í safninu, með upplýsingum um öll útilistaverk í Reykjavík sem eru um tvö hundrum talsins.

Í appinu eru einnig hljóðleiðsagnir fyrir göngu og hjólatúra og skemmtilegur leikur í þremur þyngdarstigum. Það er því tilvalið til skemmtunar og fróðleiks bæði inni og úti. Appið er bæði fyrir iphone og Android-stýrikerfi og er bæði hægt að hlaða niður á íslensku og ensku.