Leið­sögn | Endrum og sinnum

til

Leiðsögn | Endrum og sinnum

Leiðsögn | Endrum og sinnum

Hafnarhús

til

Einstaklingar úr ólíkum áttum sem eiga það sameiginlegt að hafa hvert á sinn hátt tengst Hreini Friðfinnssyni og verkum hans verða með leiðsögn um sýninguna Endrum og sinnum nokkur fimmtudagskvöld í vetur.

Fimmtudaginn 24. október kl. 20.00 mun Marteinn Tausen leiða fólk um sýninguna og deila sinni upplifun af verkum Hreins.

Verk Hreins eru ljóðræn og heimspekileg könnun á hversdagslegri mannlegri upplifun þar sem tími og tilviljun leika stórt hlutverk. Sýningin byggist eingöngu á verkum listamannsins í safneign og endurspeglar margslungnar tilraunir hans til að höndla hverfulleikann og fanga óendanleikann í tíma og rúmi.