
Hafnarhús
, til
Á hátíðina mæta tónlistarunnendur alls staðar að og ráfa um tónleikastaði í leit að næstu stjörnum íslensks tónlistarlífs eða til að horfa á sitt uppáhalds atriði.
Iceland Airwaves er óumdeilanlega mikilvægasti stökkpallur og kynningarvettvangur fyrir íslenska tónlist. Á hátíðinni gefst einstakt tækifæri fyrir tónlistarunnendur til að sjá heimsklassa tónlistarfólk koma fram og í leiðinni uppgötva eitthvað nýtt í borg sem skapar einstaka stemningu sem fólk víðsvegar að úr heiminum sækist eftir ár eftir ár.
Árið 2025 fer Iceland Airwaves fram dagana 6-8. nóvember í miðbæ Reykjavíkur.
Safnið lokar kl. 17.00 fimmtudaginn 6. nóv vegna hátíðarinnar.