Haustfrí grunn­skól­anna | Ritlistar- og teikn­ismiðja

til

Haustfrí grunnskólanna | Ritlistar- og teiknismiðja

Haustfrí grunnskólanna | Ritlistar- og teiknismiðja

Hafnarhús

til

Ritlistar- og teiknismiðja innblásin af verkum Errós á sýningunni 1001 Nótt.

Í seríunni 1001 nótt skapar Erró myndheim í kring um sögur sem aldrei voru sagðar. Hversu margar sögur er hægt að semja upp úr einni mynd?

Umsjón með smiðju: Birna Hjaltadóttir

Allt haustfríið verður boðið upp á ratleiki, smiðjur og fjör í söfnum Listasafns Reykjavíkur og fá fullorðnir frítt inn á safnið í fylgd barna.

Seinna í haustfríinu:

Föstudagur 25.október kl 13-15 á Ásmundarsafni Skapandi smiðja með hrekkjavökuþema! Ásmundarsafn tekur þátt í Hrekkjavökunni í ár og við hitum upp í þessari hryllilega skemmtilegu smiðju.

Umsjón með smiðju: Maríanna Dúfa Sævarsdóttir

Mánudagur 28.október kl 13-15. á Kjarvalsstöðum Skapandi karaktersmiðja á Kjarvalsstöðum. Við sækjum innblástur í hugarheim Hallgríms Helgasonar og hliðarsjálf hans Grim og teiknum skrípó útgáfur af okkur sjálfum!

Umsjón með smiðju: Ariana Katrín Katrínardóttir