Sunnu­dags­leið­sögn | Átthaga­mál­verkið

til

Sunnudagsleiðsögn | Átthagamálverkið

Sunnudagsleiðsögn | Átthagamálverkið

Kjarvalsstaðir

til

Sunnudagsleiðsögn með Eddu Halldórsdóttur um sýninguna Átthagamálverkið kl. 14.00.

Við ferðumst hringinn í kringum landið í gegnum sögu sem spannar rúma öld. Við stöldrum við og lítum firði, dali, þorp og bæi með augum fólks sem þekkir þar betur til en nokkur annar. Þetta eru Átthagamálverk sem máluð eru af ást og hlýju, uppfull af tilfinningu fyrir staðháttum og minningum fyrri tíma. Svo vill til að á þessu ferðalagi erum við óvenju heppin með veður!

Leiðsögn er á Kjarvalsstöðum um Átthagamálverkið alla sunnudaga í sumar (nema um Verslunarmannahelgi 4. ágúst og 25. ágúst, daginn eftir Menningarnótt)

Leiðsögnin fer fram á íslensku.

Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.