,,Eftir sinni mynd" - Þegar Danir gáfu Íslend­ingum Thor­valdsen 1874

til

,,Eftir sinni mynd" - Þegar Danir gáfu Íslendingum Thorvaldsen 1874

,,Eftir sinni mynd" - Þegar Danir gáfu Íslendingum Thorvaldsen 1874

Hafnarhús

til

Málþing í tilefni þess að árið 2024 eru liðin 150 ár frá því að Kaupmannahafnarborg gaf Íslendingum styttuna af Bertel Thorvaldsen í tilefni af 1000 ára afmæli þjóðarinnar.

Verkið var fyrsta útilistaverkið reist á Íslandi og markaði tímamót í menningarsögu þjóðar og skipulagi Reykjavíkur. Árið 1874 var einnig tímamótaár fyrir þær sakir að þá kom Danakonungur í fyrstu heimsóknina til landsins og þjóðin fékk sína fyrstu stjórnarskrá.

Dagskrá

13:00 Ólöf Kristín Sigurðardóttir safnstjóri Listasafns Reykjavíkur býður gesti velkomna. 13:05 Setning málþings 13:10 Kira Kofoed, Museum inspector, Thorvaldsens Museum: Between art and politics – on the understated cosmopolitan rebel Bertel Thorvaldsen (1770-1844). 13:30 Eiríkur G. Guðmundsson, sagnfræðingur og fyrrverandi þjóðskjalavörður: "Enga gjöf gátu Danir betur valið Íslandi". 14:00 Hlé 14:20 Jón Karl Helgason, prófessor í Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands: Thorvaldsen sem þjóðardýrlingur. 14:40 AlmaDís Kristinsdóttir, safnstjóri Listasafns Einars Jónssonar: Listamannasöfn myndhöggvaranna Einars Jónssonar og Thorvaldsen 15:00 Sigurður Trausti Traustason, deildarstjóri safneignar og rannsókna Listasafni Reykjavíkur: Þróun listar í almannarými Reykjavíkurborgar. 15:20 Pallborð 15:40 Móttaka og léttar veitingar