Safneign / Erró

Erró

Portrett af Erró

Guðmundur Guðmundsson, öðru nafni Erró (f. 1932), er tvímælalaust einn þekktasti samtímalistamaður Íslendinga.

Eftir nám á Íslandi innritaðist hann í listaakademíuna í Osló tvítugur að aldri. Árið 1954 stundað hann nám við listaakademíuna í Flórens og síðar í Ravenna þar sem hann lagði áherslu á gerð mósaíkmynda. Hann fluttist til Parísar árið 1958 og var þar tekið opnum örmum í hópi súrrealista. 

Árið 1963 fór Erró í fyrsta sinn til New York og komst í kynni við popplistina sem þá var að ryðja sér til rúms. Næstu ár fékkst hann við ýmiss konar listform, svo sem gjörningalist og tilraunakennda kvikmyndagerð auk málaralistar. Hann varð brátt einn af forvígismönnum popplistarinnar og evrópska frásagnarmálverksins (e. narrative figuration). Erró hefur búið í París í rúm sextíu ár en dvelur yfirleitt hluta úr vetri í Taílandi og á sumrin í húsi sínu í Formentera á Spáni. 

Næturriddari (Ghost Rider), 1985.

Árið 1989 gaf Erró Reykjavíkurborg stórt safn verka sinna, um 2.000 talsins.

Auk listaverkanna gaf Erró borginni umfangsmikið safn einkabréfa og annarra gagna sem snerta listferil hans. Þessar ríkulegu heimildir hafa mikið gildi fyrir allar rannsóknir sem snerta listamanninn Erró og samtíma hans. 

Safnið hefur vaxið jafnt og þétt síðustu árin því að Erró hefur haldið áfram að bæta við gjöfina og keypt hafa verið verk í safnið – sem telur nú um 4.000 listaverk. Sýningar á safni Errós eiga sér fastan sess í Hafnarhúsinu, en með þeim er leitast við að gefa sem besta mynd af fjölbreyttum áherslum í verkum listamannsins. 

Verk eftir Erró
Verk eftir Erró

Fyrri sýningar

Erró - Skörp skæri

Erró - Skörp skæri

Sjá meira
Erró: Tilraunasofa

Erró: Tilraunasofa

Sjá meira
Erró: Sæborg

Erró: Sæborg

Sjá meira
Ferðagarpurinn Erró

Ferðagarpurinn Erró

Sjá meira

Verslun

Sprengikraftur mynda, bók

Sprengikraftur mynda, bók

Sjá meira
jlsda

Bakgrunnur Pollock, upplagsverk

Sjá meira
lkjdha

Madame Picabia, plakat

Sjá meira
jdlaskjdlka

Rauði fiskurinn,upplagsverk

Sjá meira