Innrás IV: Margrét Helga Sesselju­dóttir

Innrás IV: Margrét Helga Sesseljudóttir

Innrás IV: Margrét Helga Sesseljudóttir

Ásmundarsafn

-

Margrét Helga Sesseljudóttir nýtir sér ýmsa miðla og efni í marglaga skúlptúrum sínum. Náttúruleg og persónuleg nálgun hennar er hrífandi og býður samtal hennar og verka Ásmundar áhugavert sjónarhorn. Árið 2018 eru fyrirhugaðar fjórar innrásir inn í sýninguna List fyrir fólkið í Ásmundarsafni, þar sem völdum verkum Ásmundar Sveinssonar er skipt út fyrir verk starfandi listamanna.

Fjórum listamönnum hefur verið boðið að setja upp verk sín á sýningunni í einkasamtali við verk Ásmundar. Það eru Guðmundur Thoroddsen, Hrafnhildur Arnardóttir a.k.a. Shoplifter, Margrét Helga Sesseljudóttir og Matthías Rúnar Sigurðsson. Öll vinna þau skúlptúra í ólík efni og veita verk þeirra áhugaverða sýn á þróun þrívíðrar myndlistar, efnisval og viðfangsefni..

Myndir af sýningu

Myndir frá opnun

Ítarefni

Sýningarstjóri/-ar

Sigurður Trausti Traustason

Umfjöllun fjölmiðla

Listamenn

Boðskort