Hringur Jóhann­esson - Yfir­lits­sýning

Hringur Jóhannesson - Yfirlitssýning

Hringur Jóhannesson - Yfirlitssýning

Kjarvalsstaðir

-

Hringur Jóhannesson er einn merkasti raunsæismálari sem fram hefur komið hér á landi. Hann tileinkaði sér snemma myndmál ofurraunsæis og lagði sig fram við að túlka landið og hlutveruleikann á einkar persónulegan hátt. Segja má að Hringur hafi gefið okkur nýja sýn á landið. Á síðastliðnu ári samþykkti menningarmálanefnd að efna til yfirlitssýningar á verkum listamannsins.

Hringur tók virkan þátt í undirbúningi sýningarinnar allt þar til hann féll frá, langt fyrir aldur fram. Hringur fæddíst 1932 og lést 1996. Hringur stundaði nám í MHÍ 1949-52. Hann hélt fjölda einkasýninga árunum 1962-1996, nú síðast hér 1997. samsýningar hans eru frá árunum 1951-95..

Myndir af sýningu