D32 Páll Haukur Björns­son: Heildin er alltaf minni en hlutar hennar

Páll Haukur Björnsson, Blue & black monochrome (the whale and the wave), drawing, 2018 acrylic on paper and mdf, 240x160x75cm.

D32 Páll Haukur Björnsson: Heildin er alltaf minni en hlutar hennar

Hafnarhús

-

Páll Haukur er 32. listamaðurinn sem sýnir í sýningaröð D-salar sem hóf göngu sína árið 2007. Einhverskonar landslag er að finna á sýningunni, mótað af mismunandi skúlptúrum.

En hvað er skúlptúr? Hvað myndar mörk staks hlutar og samband hans við annað?

Páll Haukur Björnsson hefur áhuga á því að skoða þessar spurningar í gegnum skúlptúrgerð. Hann notar kyrr- og hreyfimyndir, hluti sem eru hverfulir, oftast úr náttúrunni, og varanleg, manngerð efni. Textar eða orð hafa hlutverk, en sem ólíkamlegir „hlutir“ frekar en að miðla hugsunum sem stafarunur vísa til. Orð, rituð eða lesin upphátt af mismunandi röddum verða formlausir hlutir sem vefa milli titrandi tenginga sem rétt svo halda hverjum skúlptur saman sem „heild“. Við sjáum fyrir okkur tengingarnar sem bil og rými milli stafrófa hins skrifaða orðs.

Að seilast eftir og snerta fallvaltleika heildarinnar, í landslaginu lúrir hugarburðurinn. Hreyfingar eins og að halda, hallast, leka, kreista og svo framvegis, birtast í krafti þyngdarafls, hitastigs, ljóss, lofts og tíma. Páll Haukur nálgast efnivið sinn með því að rekja upp og færa úr skorðum skilgreinda merkingu sem hlutirnir hafa öðlast. Hann skoðar mörk lífleysis þeirra í leit að tengslum eða andstöðu. Hann hagræðir hlutum og færir þá frá hversdagsleika þeirra, og kemur þeim þannig fyrir að eigindleiki þeirra verður óljós. Hlutinn er áminning um breytingar sem greinast ekki í augnablikinu en óma engu að síður í ólýsanlegum en auðþekkjanlegum stað í tungumálinu.

Páll Haukur Björnsson (1981) útskrifaðist með BFA gráðu frá Listaháskóla Íslands árið 2008 og lauk meistaragráðu frá California Institute of the Arts árið 2013. Hann hefur sýnt verk og gjörninga víða, á einka- og samsýningum á Íslandi, í Bandaríkjunum og Evrópu. Páll Haukur býr og starfar í Reykjavík. 

Markmið sýningarraðirnnar í D-sal er að gefa efnilegum listamönnum tækifæri til að vinna í fyrsta sinn að einkasýningu í opinberu listasafni og beina athygli gesta að nýjum og áhugaverðum hræringum innan listheimsins..

Myndir frá opnun

Ítarefni

Sýningarstjóri/-ar

Yean Fee Quay

Listamenn

Boðskort