Hafnarhús
til
Verk Þórðar Hans Baldurssonar á D-vítamíni, Queue/Que er lifandi skúlptúr sem sem virkjast með gjörningi tónlistamanna. Kunnuglegur bílaþvottabursti dansar eftir tónlistinni og til verður sérstakt samspil manns og vélar. Á Barnamenningarhátíð 2024 mun tónlistarfólk á aldrinum fimm til sextán ára úr Suzukiskóla Reykjavíkur vekja verkið til lífsins með flutningi sínum undir dyggri leiðsögn listamannsins.