Hafnarhús
Skipulagsmál eru hagsmunamál almennings, lýðheilsumál og umhverfismál. Skipulagsmál snúast um að skapa lífsgæði. Á HönnunarMars 2024 gefst tækifæri til þátttöku í gagnvirkum vinnustofum til að öðlast betri skilning á skipulagi þéttbýlis.
Vinnustofan eru fyrir alla aldurshópa og eru börn sérstaklega velkomin. Skipulagsstofnun og Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) ætla að fjalla um skipulagsmál á mannamáli í Hafnarhúsi á HönnunarMars. Þar verða leiðbeiningar um sjálfbært skipulag og vistvænar samgöngur í þéttbýli í brennidepli en fyrr á þessu ári kom út ritið Mannlíf, byggð og bæjarrými þar sem fræðast má um skipulag byggðar í þéttbýli með fólk í fyrirrúmi, skilvirkar samgöngur og lífsgæði í íbúðum og umhverfi þeirra.
Markmiðið er að gæða leiðbeiningarnar lífi og kynna þær á gagnvirkan hátt þar sem gestir og gangandi, börn og fullorðnir, geta verið þátttakendur.