Sigurður Guðmundsson - Arki­tekt

Sigurður Guðmundsson - Arkitekt

Sigurður Guðmundsson - Arkitekt

Kjarvalsstaðir

-

Sigurður Guðmundsson arkitekt var tengiliðurinn milli ólíkra viðhorfa í íslenskri húsagerðalist á fyrra helmingi aldarinnar. Hann var í senn seinasti fulltrúi hinnar klassísku hefðar og frumkvöðull nýrrar húsagerðar í anda Bauhaus stefnunnar. Sigurður var annar í röð þeirra Íslendinga sem fyrstir nutu háskólamenntunar í byggingarlist, næstur á eftir frumherjanum, Guðjóni Samúelssyni.

Síðast en ekki síst varð Sigurður fyrstur íslenskra arkitekta til að hefja rekstur sjálfstæðrar teiknistofu árið 1925. Með störfum sínum að byggingarmálum í rúma þrjá áratugi markaði Sigurður mikilvæg spor í þróunarsögu húsagerðar hér á landi og átti auk þess þátt í að móta viðhorf heillar kynslóðar arkitekta með faglegri reynslu sinni og innsæi..