Guðný Rósa Ingimars­dóttir: opus – oups

Guðný Rósa Ingimarsdóttir: Yfirlitssýning

Guðný Rósa Ingimarsdóttir: opus – oups

Kjarvalsstaðir

-

Sýningin opus – oups er yfirlitssýning á verkum Guðnýjar Rósu Ingimarsdóttur undanfarinn aldarfjórðung. Sýningin er fimmta í röð sýninga í Listasafni Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum þar sem tekinn er til skoðunar ferill listamanns sem þegar hefur markað áhugaverð spor og má ætla að sé á listferli sínum miðjum. Hverri sýningu fylgir vegleg sýningaskrá með ljósmyndum af sýningunni, myndum af verkum og textum um Guðnýju Rósu og viðfangsefni hennar. 

Titill sýningarinnar opus – oups er lýsandi fyrir listsköpun Guðnýjar Rósu, umhverfi hennar og eilífa undrun yfir fegurðinni og hinu listræna sem finna má í hversdagslegum hlutum.

„Opus“ merkir verk á latínu og „oups“ er hið franska „úps“ en Guðný Rósa býr og starfar í Belgíu í frönsku málumhverfi. Titillinn ber með sér hik og þá undrun sem verður til þegar smáir hlutir sem oft eru lítilsigldir í sjálfu sér verða verk – en verk Guðnýjar Rósu eru gjarnan gerð úr tilfallandi efnivið sem verður á vegi hennar, jafnvel efni sem þegar hefur verið verk en í öðru samhengi. Titillinn er einnig stríðnislegur þar sem mætti halda að um stafarugl sé að ræða.

Guðný Rósa hefur á ferli sínum leitað í umhverfi sitt og reynsluheim til innblásturs. Hún hefur unnið í fjölbreytta miðla, líkt og hljóð og skúlptúra, en pappírsverk hennar hafa verið fyrirferðarmikil á ferlinum. Verkin einkennast af nákvæmni og eru gjarnan skorin út, teiknuð með fínlegum blýanti, saumuð með tvinna og ólíkum efnum jafnvel skeytt saman.

Fjölbreyttur pappír eins og kalkipappír, arkitektapappír, veggfóður og algengur prentpappír leikur gjarnan stórt hlutverk í verkum hennar og útkoman er einlæg og persónuleg.  

Guðný er fædd í Reykjavík 1969. Hún stundaði nám í Myndlistar- og handíðaskóla Íslands og lauk framhaldsnámi í L‘Ensav La Cambre í Brussel og í HISK í Antwerpen í Belgíu. Hún hefur sýnt verk sín á einkasýningum hér á Íslandi og víðsvegar um Evrópu. Verk hennar má finna í opinberum söfnum í Frakklandi, Belgíu, Slóveníu og Íslandi. Guðný Rósa býr og starfar í Belgíu..

Myndir af sýningu

Myndir frá opnun

Ítarefni

Umfjöllun fjölmiðla PDF

Umfjöllun fjölmiðla (skrár)

Sýningarstjóri/-ar

Ólöf Kristín Sigurðardóttir

Umfjöllun fjölmiðla

Listamenn

Boðskort

Boðskort