Sala­leiga - Hafn­arhús

Hafnarhús

Hafnarhús:

Portið er leigt út fyrir viðburði eins og tónleika og tónlistarhátíðir, árshátíðir, brúðkaupsveislur, afmæli, móttökur, fundi, kvikmyndahátíðir, myndatökur og fleira.

1.000 standandi gestir. 400 gestir í sætisuppröðun. 320 gestir sitjandi við hringborð. 430 gestir sitjandi við langborð.

Fatahengi. Gott aðgengi fyrir fatlaða.

Gólfflötur 500 m². Lofthæð um 12 metrar.

Tjald yfir portið svart eða hvítt.

Utan afgreiðsluopnunartíma er hægt að opna fram í anddyri safnsins.

Leigutaki sér um uppsetningu og framkvæmd við viðburði og útvegar viðeigandi tæki og búnað. Borð og stólar fyrir sitjandi veislur eru ekki tiltæk og þarf að leigja sérstaklega.

Fjölnotasalurinn er leigður út fyrir viðburði eins og móttökur, fundi, afmæli, tónleika, kvikmyndasýningar og fleira.

150 standandi gestir 80 gestir í sætisuppröðun

Gólfflötur 100 m² Lofthæð 7 metrar

Utan afgreiðsluopnunartíma er hægt að opna fram í anddyri safnsins

Búnaður Sýningatjald Skjávarpi Hljóðkerfi Stólar Pallar 4 stk. 1.25 x 2.00 m hver Ræðupúlt

Sýningar safnsins eru aðgengilegar gestum ef samið er um það fyrirfram og hægt er að óska eftir leiðsögn á íslensku eða öðrum tungumálum.

Fjölnotasalur
Portið

Myndir frá útleigum