Erró
Wagner
Width:
130 cm
Height:
162 cm
Category:
Málverk
Year:
1974
Málverkið Wagner frá árinu 1974 er hluti af So Sip Song Bangkok myndaröðinni og lagði grunninn að seríunni Counterpoints (1978–1984), sem er yfirgripsmikil myndaröð tileinkuð klassískum tónskáldum. Í þessum heiðursportrettum umlykur Erró opinbera mynd hvers tónskálds með kraftmikilli og ígrundaðri myndrænni uppstillingu sem endurspeglar líf þeirra, list, goðsagnir og óvæntar sögulegar eða menningarlegar tilvísanir. Í verkinu Wagner staðsetur Erró mynd Lenbachs af þýska tónskáldinu í miðju og umkringir hana með táknrænum þáttum sem sýna tvíeðli hans: sem óbeislað sköpunarafl og sem snjallan tónsmið. Buffalóinn sem er á sundi stendur fyrir flæði og mátt tónlistarinnar en rafmagnsvirkjunin táknar stýrða orku – sem undirstrikar hvernig Wagner beislar gríðarlega tónlistarorku sína og veitir henni í stórkostlegar tónsmíðar. Með því að bæta við sovéska stríðsminnisvarðanum, tákni sigursins yfir nasismanum, bendir Erró á söguleg tengsl tónlistar Wagners við nasista, sem tóku hana upp á sína arma. Með því að setja Wagner við hlið minnisvarðans hvetur Erró til umhugsunar um tengsl lista og sögulegra atburða, og hvernig menningararfleifð þróast undir áhrifum stjórnmála. Danielle Kvaran