Skip to content

Einar Jónsson

Útlagar

Útlagar / Einar Jónsson

Width:

93 cm

Height:

218 cm

Category:

Skúlptúr

Year:

1898-1901

Verkið er staðsett við Hólavallakirkjugarð, á horni Suðurgötu og Hringbrautar. Einar Jónsson myndhöggvari var einn þeirra listamanna sem í byrjun 20. aldar lögðu grunn að nútímamyndlist hér á landi og sá fyrsti sem gerði höggmyndalist að aðalstarfi. Með sýningu á höggmyndinni Útlagar (1898-1901) á Charlottenborgarsýningunni í Kaupmannahöfn árið 1901 haslaði Einar sér völl sem myndhöggvari. Myndefnið sótti hann í útilegumannasögur úr flokki íslenskra þjóðsagna. Verkið sýnir karlmann sem ber líflausa konu á bakinu og barn á handlegg og er áhersla lögð á þreytulegt göngulag mannsins og sorgmætt andlit. Formrænt séð er verkið natúralískt þar sem lögð er áhersla á að gera öllum atriðum nákvæm skil. Í heild kallar það fram tilfinningaleg viðbrögð áhorfandans og má túlka sem táknmynd einsemdar og útskúfunar þess sem dæmdur hefur verið.

More works by Einar Jónsson

Demanturinn
Einar Jónsson
Demanturinn / Skúlptúr
View
Bæn
Einar Jónsson
Bæn / Skúlptúr
View
Minnisvarðinn Glitfaxi
Einar Jónsson
Minnisvarðinn Glitfaxi / Skúlptúr
View
Páll Einarsson Borgarstjóri Reykjavíkur 1908-1914
Einar Jónsson
Páll Einarsson Borgarstjóri Reykjavíkur 1908-1914 / Skúlptúr
View
Þorfinnur karlsefni
Einar Jónsson
Þorfinnur karlsefni / Skúlptúr
View
Hannes Hafstein
Einar Jónsson
Hannes Hafstein / Skúlptúr
View
Ingólfur Arnarson
Einar Jónsson
Ingólfur Arnarson / Skúlptúr
View
Ingólfur Arnarson
Einar Jónsson
Ingólfur Arnarson / Skúlptúr
View
See all works (15)