Skip to content

Erró

The Battle of Kyoto / Baráttan um Kyoto

The Battle of Kyoto / Baráttan um Kyoto / Erró

Width:

200 cm

Height:

210 cm

Category:

Málverk

Year:

1974

Þetta verk byggist á samspili tveggja atriða. Í neðri hlutanum gerði Erró eftirmynd af erótískri þrykkmynd eftir Isoda Koryusai af karlmanni og sex konum í ástarleik. Í efri hlutanum málaði hann stríðssenu úr amerískri teiknimyndasögu frá sjötta áratugnum. Vestrið er þannig í efri hlutanum, sturlað morðæði, herská heift, byssuskot og sprengingar og allt í æpandi litum með skörpum andstæðum. Austrið er í neðri hluta myndarinnar, kynlíf án sektarkenndar, leikandi og fágað, íhugul andlit og nákvæmar hreyfingar og allt saman málað á mildum litaskala. Þessar tvær senur eru samt sameinaðar með grafískri aðferð þar sem línan er aðalatriði, skálínan frá neðra horni hægra megin á málverkinu gengur í gegnum báða hópana og sekkur inn í myndrýmið. Spyrja má hvort eigi að lesa samspil myndhlutanna tveggja sem myndbirtingu á slagorði friðarsinna og stjórnleysingja frá sjöunda áratugnum: Farið í ástarleik, ekki stríðsleik. Eða er hugsanlegt að lesa hlutana tvo sem hliðstæður? Þá væri erótíska senan dulbúin stríðssena og orrustan og stríðið nokkurs konar erótísk hátíð. Danielle Kvaran

More works by Erró

Manga-vegur
Erró
Manga-vegur / Málverk
View
Alia
Erró
Alia / Málverk
View
Foodscape 1964
Erró
Foodscape 1964 / Grafík
View
Frumskógardrottningin
Erró
Frumskógardrottningin / Annað
View
Facescape / Andlitavíðátta
Erró
Facescape / Andlitavíðátta / Grafík
View
Magritte 1992
Erró
Magritte 1992 / Grafík
View
Le Miró
Erró
Le Miró / Grafík
View
Án titils
Erró
Án titils / Grafík
View
See all works (4.709)