Skip to content

Rósa Gísla­dóttir

Það sem aldrei ætti að vera I

Það sem aldrei ætti að vera I / Rósa Gísladóttir

Width:

25 cm

Height:

32 cm

Category:

Skúlptúr

Year:

2018

Verkið Það sem aldrei ætti að vera (What should never be) samanstendur af sex formum úr gifsi sem fest eru upp á vegg. Heildin les sig eins og efnismikil lágmynd, með hugrenningatengsl við vöggu evrópskrar siðmenningar við Miðjarðarhafið, svo sem hofin á Akrópólishæð í Aþenu eða myndksreytingar rómverskra baðhúsa. Hinar fornu lágmyndir voru hins vegar úr gegnheilum marmara eða öðrum náttúrusteini, en þessi verk eru steypt í sílíkonmót þar sem formið opinberast í raun ekki fyrr en það fæðist, þegar það er tekið úr mótinu. Myndir formanna eiga sér engan stað í viðurkenndu táknmáli klassísisma en skrifa órætt mál sem krefur áhorfandann um virka þátttöku og athygli í leit að skilningi. Silkimött áferð steyptu gifsmyndanna býður upp á allt annars konar samspil við umhverfið en hrátt yfirborð kaldra tilhogginna marmarasteina undir suðrænni sól. -Guja Dögg Hauksdóttur (úr sýningartexta Medium of Matter)

More works by Rósa Gísladóttir

Það sem aldrei ætti að vera III
Rósa Gísladóttir
Það sem aldrei ætti að vera III / Skúlptúr
View
Afbyggt útsýni
Rósa Gísladóttir
Afbyggt útsýni / Innsetning
View
See all works (3)