Skip to content

Guðmundur Einarsson

Skúli Magnússon (1711-1794)

Skúli Magnússon (1711-1794) / Guðmundur Einarsson

Width:

90 cm

Height:

270 cm

Category:

Skúlptúr

Year:

1952-1953

Verkið er staðsett í Fógetagarðinum við Aðalstræti. Í Fógetagarðinum stendur stytta af Skúla Magnússyni, sem nefndur hefur verið faðir Reykjavíkur. Ekki er vitað hvernig Skúli leit út en þó er ekki langt liðið frá andláti hans. Styttan er býsna karlmannleg á að líta – og það vekur sérstaka athygli hvað hann er í stórum skóm. Hún er gerð af Guðmundi Einarssyni frá Miðdal og segir sagan að hann hafi skoðað nokkra afkomendur Skúla og síðan ákveðið hvernig karlinn ætti að líta út á myndinni. Skúli var einn helsti boðberi upplýsingarinnar á Íslandi. Hann var kallaður Skúli fógeti þar sem hann gegndi embætti landfógeta og varð síðar einn helsti drifkrafturinn á bak við stofnun Innréttinganna. Hann var mikill stórbokki og héraðsríkur og mikill áhugamaður um framfarir. Skúli lét af embætti fyrir aldurs sakir árið 1793 og lést þann 9. nóvember árið 1794 í Viðey. Styttan var reist 1954. Verslunarmannafélag Reykjavíkurborgar gaf Reykjavíkurborg listaverkið í tilefni 100 ára afmælis frjálsrar verslunar á Íslandi.

More works by Guðmundur Einarsson

Án titils
Guðmundur Einarsson
Án titils / Málverk
View
See all works (2)