Skip to content

Baldur Helgi Snorra­son, David Eladio Hugo Cabo

Sjáv­armál

Sjávarmál / Baldur Helgi Snorrason, David Eladio Hugo Cabo

Width:

300 cm

Height:

300 cm

Category:

Skúlptúr

Year:

2021

Sjávarmál var hannað af arkitektunum Baldri Helga Snorrasyni og David Hugo Cabo í samstarfi við rithöfundinn Andra Snæ Magnason. Verkið stendur við sjávarkambinn á Eiðsgranda og fjallar um tengsl manns og sjávar, jafnframt því að vekja athygli á áhrifum loftslagsbreytinga á höfin. Á annarri hlið verksins eru letruð íslensk heiti yfir hafið. Verkið var valið í opinni samkeppni sem haldin var samkvæmt samkeppnisreglum Sambands íslenskra myndlistarmanna. Samkeppnin varð til í kjölfar hugmyndar frá íbúum Vesturbæjar í íbúalýðræðisverkefni Reykjavíkurborgar, Hverfið mitt, þar sem íbúar geta lagt fram og kosið um hugmyndir að úrbótum í nærumhverfi sínu.