Skip to content

Sigurjón Ólafsson

Séra Friðrik og dreng­urinn

Séra Friðrik og drengurinn / Sigurjón Ólafsson

Width:

140 cm

Height:

210 cm

Category:

Skúlptúr

Year:

1952

Eins og margir aðrir hafði Sigurjón Ólafsson numið kristinfræði í æsku hjá sr. Friðriki Friðrikssyni (1868–1961) og var hlýtt til hans. Á stríðsárunum voru þeir báðir innlyksa í Danmörku þar sem Sigurjón gerði höfuðmynd af sr. Friðriki árið 1943 „áður en það yrði um seinan“ eins og hann komst að orði. Höfuðmyndin var til sýnis meðal annarra mannamynda Sigurjóns í Listvinasalnum 1952. Vaknaði þá áhugi meðal gamalla nemenda sr. Friðriks á að láta reisa hinum aldna æskulýðsleiðtoga verðugt minnismerki og var Sigurjón sjálfkjörinn til verksins. Valtýr Stefánsson, ritstjóri Morgunblaðsins, tók að sér fjársöfnun vegna minnismerkisins og samdi við yfirvöld, ríki og borg, um staðsetningu þess. Sr. Friðrik hóf að sitja fyrir hjá Sigurjóni vorið 1952 og varð þá til 60 sm há formynd úr leir sem listamaðurinn stækkaði til muna í Kaupmannahöfn þá um sumarið. Fyrirmynd drengsins sem stendur við hlið sr. Friðriks var annars vegar tréstytta af dreng eftir Tove, konu Sigurjóns, hins vegar ungur sonur samstarfsmanns hans. Minnismerkið stækkaði Sigurjón og fullvann í Kaupmannahöfn þar sem það var steypt hjá Lauritz Rasmussen. Stelling sr. Friðriks og uppbygging verksins ræðst ekki eingöngu af aldri hans og dvínandi þrótti, heldur birtist í þeim næmur skilningur á persónu og lífsstarfi kennimannsins. Verkið er ekki lengur staðsett utanhúss.

More works by Sigurjón Ólafsson

Bjarni Benediktsson Borgarstjóri Reykjavíkur 1940-1947
Sigurjón Ólafsson
Bjarni Benediktsson Borgarstjóri Reykjavíkur 1940-1947 / Skúlptúr
View
Blómgun
Sigurjón Ólafsson
Blómgun / Skúlptúr
View
Íslandsmerki
Sigurjón Ólafsson
Íslandsmerki / Skúlptúr
View
Borgarskáldið - Tómas Guðmundsson
Sigurjón Ólafsson
Borgarskáldið - Tómas Guðmundsson / Skúlptúr
View
Séra Bjarni Jónsson
Sigurjón Ólafsson
Séra Bjarni Jónsson / Skúlptúr
View
Öndvegissúlur
Sigurjón Ólafsson
Öndvegissúlur / Skúlptúr
View
Minnismerki um Nínu Tryggvadóttur
Sigurjón Ólafsson
Minnismerki um Nínu Tryggvadóttur / Skúlptúr
View
Ólafur Thors (1892-1964)
Sigurjón Ólafsson
Ólafur Thors (1892-1964) / Skúlptúr
View
See all works (21)