Skip to content

Erró

Otto Dix

Otto Dix / Erró

Width:

490 cm

Height:

220 cm

Category:

Málverk

Year:

1992

Í verkinu endurraðar Erró brotum úr verkum þýska málarans Otto Dix. Þetta gerir hann á kerfisbundinn hátt en á tvo ólíka vegu. Annars vegar birtast myndbrotin í flæðandi neti með nærmyndum af fjölbreyttum andlitum. Hins vegar birtast þau í rúmfræðilegum þríhyrningi úr teningslaga formum, innan hans raðast brotin með skipulögðum hætti. Þessar andstæður kalla fram tvær mismunandi tengingar við listasöguna: hið kaótíska flæði mynda og vel uppbyggðan strúktúr. Val Errós á myndefni frá Otto Dix er langt í frá tilviljun en hann var lykilmaður innan þýska expressjónismans og hermaður í fyrri heimsstyrjöldinni. Í verkum sínum afhjúpaði Dix grimmd síns tíma en hann og Erró eiga sameiginlegt dálæti sitt á brotakenndu myndmáli, ýkjum og gagnrýnni nálgun á nútímasamfélag. Með því að endurnýta myndmál Dix setur Erró sjálfan sig í samtal við listamanninn og endurvekur mátt tjáningar hans í samtímasamhengi. Danielle Kvaran

More works by Erró

Manga-vegur
Erró
Manga-vegur / Málverk
View
Alia
Erró
Alia / Málverk
View
Foodscape 1964
Erró
Foodscape 1964 / Grafík
View
Frumskógardrottningin
Erró
Frumskógardrottningin / Annað
View
Facescape / Andlitavíðátta
Erró
Facescape / Andlitavíðátta / Grafík
View
Magritte 1992
Erró
Magritte 1992 / Grafík
View
Le Miró
Erró
Le Miró / Grafík
View
Án titils
Erró
Án titils / Grafík
View
See all works (4.709)