Skip to content

Ásmundur Sveinsson

Móðir jörð

Móðir jörð / Ásmundur Sveinsson

Width:

96 cm

Height:

110 cm

Category:

Skúlptúr

Year:

1936

Verkið er staðsett í Grasagarðinum í Laugardal. Myndina Móðir jörð gerði Ásmundur er hann dvaldi í nokkra mánuði í Kaupmannahöfn árið 1936. Hún sýnir barn sem sýgur brjóst móður sinnar. Myndin var stækkuð og steypt í brons árið 1957. Myndbygging Móður jarðar er nánast klassískur pýramídi. Fætur og bak konunnar og barnið og vinstri hönd konunnar mynda samhverfu, stöðugt form, sem gefur myndinni festu og kyrrð. Þetta jafnvægi í heildarsýn myndarinnar er síðan liðkað með mjúkum línum og ávölum formum í líkama konunnar og barnsins. Þá er meiri léttleiki í þessu verki en fyrri verkum listamannsins, sem meðal annars er skapaður með holrými milli konunnar og barnsins. Líkamar konu og barns eru einfaldaðir í frumdrætti sína. Efnið er hér líkt og áður til að skilgreina formið sem í einfaldleik sínum gefur myndinni táknrænt gildi og um leið fjölbreytilega túlkunarmöguleika. Margar skýringar koma því til greina þegar rætt er um inntak verksins, bæði sálfræðilegar og trúarlegar. En ef við styðjumst við hugmyndir listamannsins, þá táknar konan jörðina og barnið mannfólkið. Hér er því um að ræða hina frjósömu og gjöfulu jörð sem elur mannkynið. Um verk sitt sagði listamaðurinn í samtali við Matthías Johannessen í Bókinni um Ásmund: „Ég gerði Móður jörð í Danmörku um svipað leyti og Kossinn. Ég gerði hana fyrir föður minn, sem trúði á mold og jörð. Þetta er einasta framlag mitt til landbúnaðarins“

More works by Ásmundur Sveinsson

Nafnlaust (Slípaður steinn)
Ásmundur Sveinsson
Nafnlaust (Slípaður steinn) / Skúlptúr
View
Undir friðar og landnámssól
Ásmundur Sveinsson
Undir friðar og landnámssól / Skúlptúr
View
Sjómannaminnismerki
Ásmundur Sveinsson
Sjómannaminnismerki / Skúlptúr
View
Undir friðar og landnámssól
Ásmundur Sveinsson
Undir friðar og landnámssól / Skúlptúr
View
Vængbrotni fuglinn
Ásmundur Sveinsson
Vængbrotni fuglinn / Skúlptúr
View
Þjóðlag
Ásmundur Sveinsson
Þjóðlag / Skúlptúr
View
Tristan og Ísold
Ásmundur Sveinsson
Tristan og Ísold / Skúlptúr
View
Kraftur konunnar
Ásmundur Sveinsson
Kraftur konunnar / Skúlptúr
View
See all works (427)